Falleg og mikið endurnýjuð eign í fjölbýlishúsi í Eskihlíð er komin í sölu á fasteignavef DV.
Um er að ræða 113,6 fm eign á annarri hæð. Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð og húsið fengið gott viðhald.
Eignin skiptist í anddyri, hol, gang, stofu og borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og litla geymslu innan íbúðar.
Þú getur lesið nánar um eignina og skoðað fleiri myndir á fasteignavef DV.