Áhorfendur Netflix hafa lýst óánægju yfir ákveðnu atriði í nýju jólamynd streymisveitunnar, Family Switch.
Family Switch er eins og vinsæla kvikmyndin Freaky Friday eða myndin The Change-Up, þar sem aðalpersónur skipta um líkama. Í þessu tilfelli skipta foreldrarnir, sem Jennifer Garner og Ed Helms leika, um líkama við börnin sín tvö, unglingsstúlku og -strák.
Í myndinni fá áhorfendur að fylgjast með fjölskyldunni í þessum nýju aðstæðum og reyna að koma öllu í fyrra horf. Um er að ræða fjölskyldugamanmynd en eitt atriði hefur vakið mikla reiði meðal áhorfenda.
Í umræddu atriði þurfa krakkarnir, sem eru þá í líkama foreldra sinna, að kyssast í veislu.
„Til hvers að hafa þetta atriði? Mjög skrýtið,“ sagði einn netverji.
„Það er verið að gefa sifjaspell til kynna í þessari mynd. Hvernig hafði það áhrif á söguþráðinn? Og af hverju að setja þetta í jólamynd sem er ætluð allri fjölskyldunni?“
Ljóst er að gagnrýnin hefur ekki haft áhrif á vinsældir myndarinnar en hún er efst á vinsældalista Netflix á Íslandi.