fbpx
Fimmtudagur 25.júlí 2024
Fókus

Eiginkona Kanye West skildi lítið eftir fyrir ímyndunaraflið

Fókus
Mánudaginn 11. desember 2023 09:32

Kanye West og Bianca Censori. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ástralski arkitektinn Bianca Censori, sem er hvað þekktust fyrir að vera eiginkona rapparans Kanye West, heldur áfram að vekja athygli með fatavali sínu og í þetta skipti skildi hún lítið eftir fyrir ímyndunaraflið í gegnsæjum galla.

Í nóvember greindu erlendir miðlar frá því að vinkonur Biöncu reyndu að grípa í taumana og fá vinkonu sína til að slíta sambandinu við rapparann.

„Vinkonur hennar sögðu henni nákvæmlega hvernig þeim líður og sögðu henni að opna augun,“ sagði heimildarmaður Daily Mail á sínum tíma.

„Bianca veit að hún hefur lokað á sína nánustu og hún er byrjuð að sjá í gegnum allt ruglið varðandi hjónaband sitt,“ sagði hann og bætti við að hún sé „meðvituð um stjórnsemi Kanye“ og sé byrjuð að „sjá hlutina frá öðru sjónarhorni.“

En meint samkoma eða „intervention“ virðist ekki hafa virkað, allavega ekki eins og vinkonur hennar vonuðu, þar sem hjónin hafa haldið áfram að láta sjá sig í alls konar múnderingum á almannafæri.

Bianca og Kanye mættu á viðburð hjá galleríinu Art Basel í Miami á sunnudaginn. Arkitektinn var í gegnsæjum galla, með loðhúfu og hélt á stórum bangsa. Fjölmiðlar vestanhafs þurftu að „blörra“ myndirnar þar sem sást í geirvörtur hennar og rass.

Samkvæmt TMZ lét parið lítið fyrir sér fara og talaði ekki við neinn á samkomunni, ekki einu sinni hvort annað.

Vinkonur hennar hafa áhyggjur

Bianca er ástralskur arkitekt og byrjaði að starfa fyrir fyrirtæki Kanye, Yeezy, árið 2020. Þau hafa verið saman síðan byrjun árs 2023 og eru sögð hafa gifst við leynilega athöfn um miðjan janúar.

Í september sögðust vinkonur hennar hafa miklar áhyggjur af henni og að Kanye væri að „reyna að breyta henni í róttækari útgáfu af fyrrverandi eiginkonu hans, Kim Kardashian.“

Sjá einnig: Vinkonur eiginkonu Kanye West hafa miklar áhyggjur af hegðun hennar – „Hún er ekki svona“

Fatastíll og útlit hennar hefur tekið rosalegum breytingum eftir að hún kynntist rapparanum en það er þekkt að Kanye hafi áhrif á klæðaburð eiginkvenna sinna og kærasta.

Í sumar voru Bianca og Kanye á ferð um Ítalíu og vakti klæðaburður hennar mikla athygli og talsverða reiði. Fjölmargir kölluðu eftir því að Bianca yrði handtekin fyrir að særa blygðunarsemi en hún klæddist litlu öðru en gegnsæjum sokkabuxum og litlum toppum. Eitt kvöldið gekk hún um með púða í stað þess að vera í bol.

Þau voru einnig sett í lífstíðarbann eftir ósæmilegt atvik á bát.

Sjá einnig: Heldur áfram að hneyksla á Ítalíu – Svona var fatastíllinn áður en hún giftist Kanye

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Veðrið á Íslandi vekur mikla athygli – Margir væru til í að skipta við okkur

Veðrið á Íslandi vekur mikla athygli – Margir væru til í að skipta við okkur
Fókus
Í gær

Forsetafjölskyldurnar hittust á Bessastöðum

Forsetafjölskyldurnar hittust á Bessastöðum
Fókus
Fyrir 2 dögum

Stórstjarnan að mestu hætt neyslunni – Eitt getur hann ekki gefið upp á bátinn

Stórstjarnan að mestu hætt neyslunni – Eitt getur hann ekki gefið upp á bátinn
Fókus
Fyrir 2 dögum

Þekkir þú brúðhjónin á þessum myndum? – Ljósmyndara leitað

Þekkir þú brúðhjónin á þessum myndum? – Ljósmyndara leitað
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þjófstartaði afmælinu með Bridgerton-þema – Eiginmaðurinn hvergi sjáanlegur

Þjófstartaði afmælinu með Bridgerton-þema – Eiginmaðurinn hvergi sjáanlegur
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Var komin á þann stað að mér leið eins og ég væri að panta mér vanlíðan á Amazon“

„Var komin á þann stað að mér leið eins og ég væri að panta mér vanlíðan á Amazon“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sex hversdagslegar kynlífsupplifanir sem karlmenn þrá en þora ekki að biðja um

Sex hversdagslegar kynlífsupplifanir sem karlmenn þrá en þora ekki að biðja um
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ferill Katy Perry riðar til falls eftir heimskulegar ákvarðanir

Ferill Katy Perry riðar til falls eftir heimskulegar ákvarðanir