Breska fyrirsætan Mia Regan, kærasta bresku knattspyrnustjörnunnar Romeo Beckham, hélt sérstakan viðburð í verslun 66°Norður á Regent Street í London á dögunum þar sem hún sagði frá ferð sinni um Himalaya-fjöllin þar sem hún klæddist íslenskri hönnun frá fataframleiðandanum.
Húsfyllir var á í versluninni en 100 miðar sem voru í boði seldust upp samdægurs. Romeo Beckham mætti að sjálfsögðu á viðburð kærustunnar ásamt fjölskyldu hennar. Hannah Da Silva, stofnandi CORPGIRLS, stýrði viðburðinum.Regan gekk nýverið að grunnbúðum Everest ásamt föður sínum þar sem hún klæddist einungis íslenskri hönnun. Hún hefur verið dugleg að deila myndum og myndböndum frá göngu sinni um Himalaya-fjöllin á samfélagsmiðlum og hefur verið mikill áhugi á ferð hennar. Hún leyfði fylgjendum sínum að kíkja ofan í ferðatöskuna sína og fór í gegnum það sem hún pakkaði með sér fyrir gönguna á TikTok.
Þar má sjá að ofan í stórri appelsínugulri tösku frá 66° Norður er nær einungis fatnaður frá 66° Norður, allt frá sokkum og eyrnahlífum yfir í buxur, regnjakka og úlpu. Regan og Beckham virðast bæði vera hrifin af íslenskri hönnun. Þau hafa þó nokkrum sinnum sést klædd í fatnað frá 66° Norður, til dæmis á tískuvikunni í Kaupmannahöfn, í Lundúnum, í útilegu í Wales og nú á göngu um Himalaya-fjöllin.