fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fókus

Þau eru tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 1. desember 2023 16:45

Þau sem tilnefnd eru til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2023

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tilnefningar til Íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans og Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2023 voru kynntar í dag í Eddu, Arngrímsgötu 5. 

Bæði verðlaun verða afhent um mánaðamótin janúar-febrúar á komandi ári af forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni. Formenn dómnefndanna fjögurra, Hjalti Freyr Magnússon, Kristján Sigurjónsson, Steingerður Steinarsdóttir og Steinunn Valdís Óskarsdóttir munu koma saman ásamt forsetaskipuðum formanni, Kristínu Ingu Viðarsdóttur, og velja einn verðlaunahafa úr hverjum flokki. Verðlaunaupphæðin er ein milljón króna fyrir hvert verðlaunaverk. Félag íslenskra bókaútgefenda kostar verðlaunin.  

Íslensku bókmenntaverðlaunin voru fyrst veitt árið 1989 og er ætlað að draga fram athyglisverðustu útgáfubækur hvers árs. Þetta er í 35. sinn sem tilnefnt er til verðlaunanna. Sambærileg verðlaun eru veitt af útgefendafélögum í Svíþjóð og Noregi. Sænsku verðlaunin eru jafn gömul þeim íslensku, voru stofnuð árið 1989, og bera nafnið Augustpriset (http://www.augustpriset.se/).  Norsku verðlaunin heita Brageprisen (http://brageprisen.no/). Þau voru stofnuð árið 1992. 

Félag íslenskra bókaútgefenda gerði samkomulag við Íslenska glæpafélagið árið 2022 um að taka yfir verklega framkvæmd Íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans ásamt því að kosta verðlaunin með sama hætti og Íslensku bókmenntaverðlaunin. Handhafi Blóðdropans verður, líkt og áður, framlag Íslands til norrænu glæpasagnaverðlaunanna Glerlykilsins. 

Eftirfarandi höfundar eru tilnefndir til Íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans: 

Steindór Ívarsson 

Blóðmeri 

Útgefandi: Storytel og Sögur útgáfa 

Spennandi frásögn af rannsókn á dularfullum og óhugnanlegum morðum í Reykjavík nútímans, sem tengjast ódæðisverki í fortíðinni. Vel er sagt frá framvindu rannsóknarinnar og hvernig ógnvekjandi atburðir grípa inn í hversdagstilveru fólks, sem virðist ofurvenjulegt. Spennunni er haldið fram á síðustu blaðsíðu. 

Stefán Máni  

Borg hinna dauðu 

Útgefandi: Sögur útgáfa 

Vel heppnaður spennutryllir þar sem ein litríkasta persóna íslenskra glæpasagna leysir úr flóknu sakamáli í kappi við tímann. Sögunni vindur áfram með myndrænum og áreynslulausum hætti. Sjónarhorninu er einnig beint að óþolandi þjóðfélagsmeini og krefjandi fjölskyldulífi lögreglumannsins. Afraksturinn er vönduð glæpasaga sem heldur lesandanum á tánum frá upphafi til enda.  

Eva Björg Ægisdóttir  

Heim fyrir myrkur 

Útgefandi: Veröld 

Vel sögð saga með fjölbreyttu, breysku persónugalleríi og slunginni atburðarás. Sögusviðið er áhugavert og sagan er í senn glæpa- og spennusaga, sálfræðitryllir, fjölskyldudrama og íslensk samfélagslýsing á seinni hluta síðustu aldar. Höfundur sáir fjölda efasemda í hug lesanda þannig að hann grunar allt og alla söguna á enda. 

Skúli Sigurðsson 

Maðurinn frá São Paulo 

Útgefandi: Drápa 

Nýstárleg saga þar sem sögulegum atburðum og raunverulegum persónum úr mesta hildarleik sögunnar er fléttað saman við íslenskt samfélag á 8. áratug siðustu aldar. Höfundur vandar vel til verka og sagan hefur yfir sér trúverðugan blæ þrátt fyrir að atburðarásin sé framandi. Spennandi og grípandi frásögn, sem lesandinn getur vart lagt frá sér fyrr en ráðgátan leysist. 

Arnaldur Indriðason 

Sæluríkið 

Útgefandi: Vaka Helgafell 

Firnagóð flétta þar sem þræðir spillingar við úrlausn gamals morðmáls vefast saman við tortryggni kaldastríðsáranna og manndráps í nútímanum. Umhverfis- og samfélagslýsingar áhrifaríkar og persónusköpun hreint afbragð. 

Dómnefnd skipuðu: 

Björn Ingi Óskarsson, Kristján Sigurjónsson, formaður dómnefndar, og Mjöll Snæsdóttir. 


Eftirfarandi höfundar eru tilnefndir í flokki barna- og ungmennabóka: 

Gunnar Helgason og Rán Flygenring myndhöfundur 

Bannað að drepa 

Útgefandi: Mál og menning 

Stórkostlega fyndin, einlæg og átakanleg frásögn sem spilar á allan tilfinningaskalann. Sagan, sem tekur áreynslulaust á málefnum líðandi stundar, er skemmtilega myndlýst, auðlesin og persónusköpun höfundar einstök. 

Vísindalæsi – Hamfarir 

Sævar Helgi Bragason og Elías Rúni myndhöfundur 

Útgefandi: JPV útgáfa 

Hnyttin og fræðandi bók um áhrifamátt hamfara, svo sem tilurð tungls og jarðar, þróun súrefnis og örlög risaeðla. Einstaklega vel myndlýst frásögn sem hvetur til umhugsunar um örlög jarðarinnar og hvort við getum enn haft einhver áhrif.    

Hildur Knútsdóttir 

Hrím 

Útgefandi: JPV útgáfa 

Vel skrifuð og heillandi þroskasaga sem fjallar um erfiða lífsbaráttu, hugrekki, ástina og trúna á sjálfan sig í heimi sem er svo nálægt okkur en samt svo fjarri. Höfundur býr til mjög trúverðugan hugarheim og tekst að halda lesandanum spenntum frá upphafi til enda. 

Arndís Þórarinsdóttir og Hulda Sigrún Bjarnadóttir  

Mömmuskipti 

Útgefandi: Mál og menning 

Frumleg saga sem fjallar á meinfyndinn en einlægan hátt um líf barna hinna svokölluðu áhrifavalda. Hvers virði er einkalífið? Er hægt að setja það upp í súlurit og kökur?  Hve mikið ætlum við að láta snjalltækin stjórna lífi okkar? 

Embla Bachmann 

Stelpur stranglega bannaðar! 

Útgefandi: Bókabeitan 

Einföld en áhrifarík saga sem fjallar á lipran hátt um flóknar tilfinningar. Dásamleg og djúp persónusköpun með skemmtilegum lýsingum sem hrífa lesandann með sér. Glæsileg frumraun höfundar. 

Dómnefnd skipuðu: 

Ásgerður Júlíusdóttir, Hjalti Freyr Magnússon, formaður dómnefndar, og Hrönn Sigurðardóttir Erludóttir. 

Eftirfarandi höfundar eru tilnefndir í flokki fræðibóka og rita almenns efnis: 

Þórður Helgason  

Alþýðuskáldin á Íslandi – Saga um átök 

Útgefandi: Hið íslenska bókmenntafélag 

Tímamótaverk og mikill fróðleikur saman dreginn um efni sem hefur ekki mikið verið fjallað um til þessa. Vel skrifuð bók. 

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir  

Ég verð aldrei ungfrú meðfærileg – Baráttusaga Guðrúnar Jónsdóttur 

Útgefandi: Vaka Helgafell 

Áhrifarík bók þar sem Guðrún hlífir hvorki sjálfri sér né öðrum. Skrifuð af ástríðu fyrir efninu og fjallar um ævistarf konu í þágu kvenna. 

Elsa E. Guðjónsson og Lilja Árnadóttir 

Með verkum handanna – Íslenskur refilsaumur fyrri alda 

Útgefandi: Þjóðminjasafn Íslands 

Glæsileg bók og ríkulega myndskreytt. Fallegt og veglegt rit sem vitnar um ríkt menningarstarf kvenna á fyrri tímum. Í bókinni er fjallað á greinargóðan hátt um þann stórbrotna menningararf sem klæðin eru.   

Haraldur Sigurðsson  

Samfélag eftir máli – Bæjarskipulag á Íslandi og fræðin um hið byggða umhverfi 

Útgefandi: Sögufélag 

Glæsilegt verk þar sem höfundi tekst að fjalla um breytinguna úr sveit í borg á aðgengilegan og læsilegan hátt. Vandað yfirlitsverk um skipulagsmál. 

Guðmundur Magnússon  

Séra Friðrik og drengirnir hans – Saga æskulýðsleiðtoga 

Útgefandi: Ugla útgáfa 

Yfirgripsmikil bók sem byggir á ítarlegri rannsóknarvinnu og skoðun á viðamiklum skjala og bréfasöfnum. Höfundur lætur heimildirnar tala sínu máli og lætur lesanda eftir að draga ályktanir. 

Dómnefnd skipuðu: 

Bessý Jóhannsdóttir, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður dómnefndar og Þorvaldur Sigurðsson. 

 

Eftirfarandi höfundar eru tilnefndir í flokki skáldverka: 

Steinunn Sigurðardóttir 

Ból 

Útgefandi: Mál og menning 

Margslungin, þétt og spennandi örlagasaga. Djúpri sorg og söknuði er lýst af einstakri næmni og listfengi. Persónusköpunin er einkar vel heppnuð og tengingu manns og náttúru gerð skil á athyglisverðan hátt. Ólgandi tilfinningar persóna eiga sér samhljóm í náttúruöflunum þegar sár leyndarmál koma í ljós. 

Auður Ava Ólafsdóttir  

DJ Bambi  

Útgefandi: Benedikt bókaútgáfa 

Áhrifamikil skáldsaga skrifuð af miklu næmi og innsæi. Höfundur veltir upp heimspekilegum tilvistarspurningum af  mennsku og hlýju. Ljóðrænn textinn er hrífandi fallegur og kíminn. Persónurnar eru eftirminnilegar og smeygja sér inn í hjörtu lesenda. Leikandi létt, listræn og hugmyndarík saga um óvænt kraftaverk hversdagslífsins á línunni milli lífs og dauða. 

Bjarni M. Bjarnason
Dúnstúlkan í þokunni 

Útgefandi: Veröld 

Vel uppbyggð og fallega skrifuð söguleg skáldsaga. Höfundi tekst að skapa dulúð og heillandi heim þar sem allt getur gerst. Frumlegur söguþráður og skemmtileg tengsl við galdratrú fortíðarinnar og íslenskan þjóðsagnaarf. Persónur eru trúverðugar og sagan bæði áhrifamikil og eftirminnileg. 

Vilborg Davíðsdóttir  

Land næturinnar  

Útgefandi: Mál og menning 

Vel skrifuð, þrælspennandi og áhugaverð bók. Heimildavinna skilar lifandi lýsingu á menningu, lífsháttum og ferðum fornmanna sem hrífur lesanda með sér. Vilborg sækir í íslenskan sagnabrunn og má segja að Land næturinnar sé kóróna á sérlega vönduðu höfundarverki undanfarna áratugi. 

Eiríkur Örn Norðdahl  

Náttúrulögmálin 

Útgefandi: Mál og menning 

Söguleg skáldsaga, full af húmor og skrifuð af mikilli orðgnótt. Söguna einkennir rífandi frásagnargleði, listfengi í stíl og frumlegur söguþráður. Þrátt fyrir fjörið og léttleikann er hér tekist á við stórar heimspekilegar spurningar svo úr verður innhaldsríkt og eftirtektarvert skáldverk. 

Dómnefnd skipuðu: 

Guðrún Birna Eiríksdóttir, Hlynur Páll Pálsson  og Steingerður Steinarsdóttir sem jafnframt var formaður dómnefndar. 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

Harry og Meghan fá á baukinn fyrir nýja ,,áhugamálið“ í Bandaríkjunum

Harry og Meghan fá á baukinn fyrir nýja ,,áhugamálið“ í Bandaríkjunum
Fókus
Fyrir 3 dögum

Frosti úthúðar fyrrverandi vinnufélaga sínum

Frosti úthúðar fyrrverandi vinnufélaga sínum
Fókus
Fyrir 4 dögum

Tinder ekki að gefa? – Kannski Bænder sé málið

Tinder ekki að gefa? – Kannski Bænder sé málið
Fókus
Fyrir 4 dögum

Haukur Már skipti út frönskum og fékk kvörtun nakinn í World Class – „Ég hef svona semi fengið morðhótanir“

Haukur Már skipti út frönskum og fékk kvörtun nakinn í World Class – „Ég hef svona semi fengið morðhótanir“