Brandon Blackstock, fyrrverandi eiginmaður söngkonunnar Kelly Clarkson, hefur verið skipað að greiða henni rúmlega 366 milljónir krónur til baka eftir að hafa ofrukkað þóknun sína þegar hann starfaði fyrir hana á meðan þau voru gift.
Samkvæmt lagaskjölum sem TMZ hefur undir höndum er litið svo á að Blackstock hafi farið yfir línuna þegar hann bókaði gigg og skrifaði undir samninga fyrir þáverandi eiginkonu sína.
Vinnumálastjóri Kaliforníu lítur svo á að aðeins umboðsmenn en ekki stjórnendur (e. manager) – sem var titill Blackstock – geti með lögmætum hætti bókað verkefni fyrir skjólstæðing sinn. Það eru hins vegar einhverjar undantekningar.
Blackstock þarf að greiða Clarkson rúmlega 366 milljónir króna, en hann er sagður ætla að áfrýja ákvörðun vinnumálastjóra.
Clarkson, 41 árs, sótti um skilnað frá Blackstock, 46 ára, í júní 2020 eftir næstum sjö ára hjónaband. Þau eiga saman tvö börn.