Fátt er jólalegra en að spila gott borðspil eftir jólamatinn eða í jólaboðinu. DV fer yfir nokkur af helstu jólaspilunum í ár.
Carcassonne eftir Klaus-Jurgen Wrede kom út um aldamótin og hefur verið eitt af vinsælustu borðspilum heims allar götur síðan. Þetta er einfalt flísalagninarspil sem snýst um að safna stigum með því að byggja borgir, vegi, klaustur og akra í miðaldaborginni Carcassonne.
Vinsældir Carcassonne hafa verið slíkar að ótal viðbætur hafa verið gerðar og ýmsar sérstakar gerðir af spilinu, svo sem steinaldarútgáfa og Amazon útgáfa. Spilakallarnir í Carcassonne (meeples) hafa meira að segja orðið eins konar táknmynd fyrir borðspilaáhugamálið í heild.
Nú er komin út sérstök vetrar útgáfa af Carcassonne sem spilast alvega eins og upprunalega spilið. Það verður að segjast eins og er að þetta er gullfalleg útgáfa og einstaklega jólaleg.
Rétt eins og upprunalega spilið er þessi útgáfa einföld og frekar sutt, spilast á klukkutíma í mesta lagi. Spilið inniheldur nokkrar litlar viðbætur, svo sem „Fljótið“ sem eru flísar sem eru lagðar í upphafi spilsins.
Varúð: Carcassonne er eitt af þeim spilum, ásamt Catan og Ticket to Ride, sem er alræmt fyrir að breyta saklausum Jónum og Gunnum í forfallna borðspilanörda á undrastuttum tíma.
Fjöldi: 2-5
Aldur: 8+
Tími: 30-45 mín
Útgefandi: Nordic Games
Talandi um Ticket to Ride. Þá er einnig komin út sérstök vegleg afmælisútgáfa af spilinu Ticket to Ride: Europe eftir Alan Moon. Spil sem margir þekkja og snýst um að leggja niður járnbrautarleiðir.
Rétt eins og Carcassonne þá ber Ticket to Ride ábyrgð á að hala marga inn í áhugamálið. Ástæðan er sú að þetta er einfalt og fljótlegt og það er gríðarlega ánægjulegt að sjá net járnbrautalesta verða til á kortinu. Það er að segja ef skúrkurinn hann Bjössi frændi leggur ekki lestar í veg fyrir þig!
Það eru til ótal kort en upphaflegu kortin tvö, Norður Ameríka og Evrópa, eru enn þá langvinsælust. Fyrir þá sem þekkja aðeins Norður Ameríku kortið þá bætast tveir hlutir við í Evrópukortinu. Lestarstöðvar sem leyfa manni að nota leiðir annarra og göng sem er áhætta fyrir mann að nota því maður veit ekki hversu mörg spil maður þarf að borga fyrir þau.
Þessi útgáfa er sérstaklega vegleg, eins konar deluxe útgáfa, og þá sérstaklega lestirnar sjálfar sem eru einstakar fyrir hvern leikmann og koma í málmboxum. Helsta viðbótin í þessari útgáfu, miðað við upprunalegu útgáfuna, eru lestarmiðarnir. Það er að segja markmiða spjöldin, þau eru miklu fleiri.
Fjöldi: 2-5
Aldur: 8+
Tími: 30-60 mín
Útgefandi: Nordic Games
Þá er einnig komin út ný útgáfa, eða afbrigði (viljandi orðaleikur), af samvinnuspilinu Pandemic eftir Matt Leacock. Pandemic er án efa þekktasta samvinnuspil heims, sem snýst um að halda niðri og finna lækningu við fjórum skæðum drepsóttum.
Pandemic: Hot Zone Evrópa er eins konar framhald af Pandemic: Hot Zone Norður Ameríku þar sem ekki er einblínt á allan heiminn, eins og í Pandemic, heldur á eina heimsálfu.
Má segja að um smækkaða mynd af Pandemic sé að ræða, ekki aðeins kortinu heldur leiknum sjálfum. Til að mynda eru aðeins þrjár drepsóttir sem leikmenn þurfa að kljást við, hlutverk eru færri að velja um, spilakortin færri og styttra í að drepsóttirnar breiðist svo hratt út að leikurinn tapast. Spilið er líka styttra, umtalsvert styttra en Pandemic.
Helsti munurinn, fyrir utan lengdina, er líklega nokkur kortaspil sem hægt er að bæta inn í bunkann sem gera spilið erfiðara. Því er með einföldum hætti hægt að stilla erfiðleikastigið og þar með auka líkurnar á að spilið verði ekki einsleitt.
Pandemic: Hot Zone Evrópa kannski ekki endilega spil fyrir djúpt sokkna borðspilanörda, heldur kannski frekar þá sem eru óreyndari og yngri. Eða þá fyrir mikla Pandemic aðdáendur sem vilja eiga eitthvað í safninu sem uppfyllir Pandemic þörfina á stuttum tíma.
Fjöldi: 1-4
Aldur: 8+
Tími: 30 mín
Útgefandi: Nordic Games