Benjamin fór með hlutverk Jeremiah Jesus í þáttunum Peaky Blinders og ætti að vera aðdáendum þáttarins að góðu kunnur.
Aðeins eru tveir mánuðir síðan Benjamin greindist með illkynja heilaæxli og var sjúkdómurinn fljótur að draga hann til dauða. Benjamin lætur eftir sig eiginkonu.
Benjamin var mikilsvirtur listamaður og lét til sín taka á ýmsum sviðum, til dæmis í leiklist, skrifum og tónlist.
Hann skrifaði fjölmargar ljóðabækur, skáldsögur, barnabækur og leikrit svo eitthvað sé nefnt.