Svona byrjar myndband bandaríska áhrifavaldsins Jess Jacobsen á TikTok, þar sem hún er með milljón fylgjendur ,og hefur umrætt myndband fengið yfir 7,4 milljónir í áhorf.
Hún segir frá því sem gerðist. „Ég var heima hjá honum og fór á klósettið til að kúka. Ég ætlaði að skeina mér en það var enginn klósettpappír. Ég var alveg: „Ohh… Hey, elskan, ertu til í að fara á neðri hæðina og ná í klósett pappír fyrir mig?“ Hann sagði nei. „Ég var búinn að segja þér að klósettpappírinn sé búinn á þessu klósetti,“ sagði hann.“
Jess sagðist hafa gleymt því og bað hann um að rétta sér klósettpappír en hann hélt áfram að neita.
„Ég reyndi að útskýra fyrir honum að aðeins hann gæti hjálpað mér, ég gæti ekki farið sjálf niður að ná í klósettpappír en hann hélt áfram að segja nei.“
Kærastinn byrjaði þá að hunsa hana og láta eins og hann heyrði ekki í henni.
„Ég heyrði í símanum hans, hann var bara að horfa á eitthvað. Þannig ég ákvað, ókei ef þú ætlar ekki að hjálpa mér þá þarf ég að öskra eftir hjálp. Og ég byrjaði að öskra: „HJÁLP! HJÁLPIÐ MÉR!“ Og hann stóð þá loksins upp og sagði: „Allt í lagi, þú ert svo fokking dramatísk.“ Hann fór síðan niður á ná í klósettpappír, opnaði hurðina og kastaði rúllunni í höfuð mitt og ég fór að gráta. Þetta er það ruglaðasta sem einhver hefur gert mér.“
Netverjar hvetja konuna til að standa með ákvörðun sinni að hætta með honum. „Hlauptu í burtu, hegðun hans mun aðeins versna,“ sagði einn.
„Ég hefði notað handklæðið hans, labbað út og aldrei talað við hann aftur,“ sagði önnur.
Þú getur horft á hana segja söguna hér að neðan og lesið athugasemdirnar, sem eru rúmlega 26 þúsund talsins.
@oohhjesssI will never get over this♬ original sound – Jess Jacobsen