Enn eitt árið er það tónlistarkonan Hafdís Huld Þrastardóttir sem hefur yfirburði yfir aðra tónlistarmenn á íslenska Spotify-markaðinum. Tónlistarrisinn birti í gær upplýsingar um mest spiluðu tónlistarmenn og lög ársins og þá kom í ljós að Hafdís Huld var mest streymdi tónlistarmaður landsins. Útgáfa hennar af vögguvísunni, Dvel ég í draumahöll, er mest streymda lag ársins og plata hennar Vögguvísur, frá árinu 2012, er mest streymda plata ársins. Ekki nóg með það þá átti Hafdís Huld sjö af tíu mest streymdu lögum ársins en öll voru þau af áðurneffdri barnaplötu sem Hafdís Huld vann með tónlistarmanninum Alisdair Wright.
Árangurinn er undraverður í ljósi þess að umrædd plata er frá árinu 2012 en ekkert lát virðist vera á vinsældum hennar enda hafa ljúfir tónarnir hjálpað ófáum börnum að festa svefn og ekki síður úrvinda foreldrum sem hrökkva stundum upp með slef út á kinn þegar síðasta lag plötunnar klárast.
En hvað ætli allar þessar spilanir á Spotify gefa í aðra hönd. Það er í raun aðeins hægt að skjóta á þá tölu en rétt er að taka þeim með miklum fyrirvara. Að meðtaltali eru tónlistarmenn sagðir fá um 3-5 dollara fyrir hverjar eitt þúsund spilanir. Hver upphæðin er getur þó munað talsvert miklu milli landa, þannig eru til dæmis hlustanir í Bandaríkjunum nær tvöfalt verðmætari en hlustanir frá Portúgal.
Hvar Ísland stendur í þeirri gjaldskrá er óráðið. Þá skiptir líka máli hvort að borgandi áskrifendur séu að hlusta á tónlistina þína en ekki þeir sem nota frían aðgang með öllum þeim takmörkunum sem slíkum aðgangi fylgja. Ef borgandi áskrifendur eru í meirihluta þeirra sem eru að hlusta þá fær tónlistarmaðurinn meira fyrir sinn snúð.
En með þessum fyrirvörum er hægt að skjóta á tekjur Hafdísar Huldar af plötunni sinni. Á þessum ellefu árum hefur lögum plötunnar verið streymt meira en 60 milljón sinnum. Dvel ég í Draumahöll er langvinsælasta lagið með rúmar 8 milljónir spilanna en hin fjórtán lög plötunnar eru með á bilinu 5-3 milljónir spilanna.
Gróflega áætlað myndi þýða að Hafdís Huld hafi fengið sem nemur um 25 til 40 milljónum króna í heildartekjur á Spotify fyrir plötuna sína vinsælu. Þeirri upphæð deilir hún svo með Alisdair og svo má reikna með því að útgefandi hennar, Sena, taki sneið af kökunni.
Að öllum líkindum eru því tekjur Hafdísar Huldar af Spotify aðeins ágætis búbót á hverju ári en ekkert meira en það. Smæð markaðarins er því miður slík en það er huggun harmi gegn að platan hefur líka selst í bílförmum en árið 2021 fékk hún afhenta tvöfalda platínuplötu í kjölfar þess að yfir 20 þúsund eintök höfðu selst. Hafdís Huld ætti nefnilega skilað að lifa í vellystingum fyrir allar þær hugljúfu stundir sem verk hennar hefur veitt foreldrum og börnum þessa landsins.