Hún sat fyrir franska tímaritið M á dögunum og birti nokkrar myndir úr tökunni á Instagram. Ein þeirra hefur verið mjög umdeild, þar sem hún er klædd í allt of stórar gallabuxur. Buxurnar eru það stórar að hún passar í aðra skálmina.
„Þetta er mjög furðulegt,“ sagði ein kona.
„Að skrifa bók um femínisma og valdeflingu kvenna, og birta síðan þessa mynd er sturlað,“ sagði einn netverji
Árið 2021 gaf Emily út bókina My body sem fjallaði um flókið samband hennar við líkama hennar.
„Hversu skrýtin mynd, og þú sem skrifaðir bók um líkamsímynd?“ sagði annar.
Þetta er aðeins agnarsmár hluti af þeim fjölda athugasemda sem voru ritaðar við færsluna þar sem fyrirsætan var gagnrýnd.
Fyrirsætan Tess Holliday er ötull talsmaður jákvæðrar líkamsímyndar. Hún skrifaði við mynd Emily: „Ég hef verið að leita að þessum buxum, þannig ef þú getur skilað mér þeim…“
Færsluna má sjá hér að neðan, myndin er númer tvö í röðinni.
View this post on Instagram