Bandaríski grínistinn Matt Rife hefur sætt harðri gagnrýni undanfarið eftir að uppistand hans Natural Selection fór í loftið á streymisveitunni Netflix. Brandari hans um heimilisofbeldi hefur verið mjög umdeildur og til að svara gagnrýninni birti Rife – að því er virtist – afsökunarbeiðni og tengil, og þegar fólk ýtti á hlekkinn fór það á síðu sem selur hjálma fyrir fólk með sérþarfir.
Rife sagði umræddan brandara í byrjun uppistandsins. Hann sagði sögu af sér og vini sínum þegar þeir voru á veitingabúllu í Baltimore. Þeir tóku eftir því að þjónustukonan var með glóðarauga. Þeir vinirnir veltu því fyrir sér af hverju hún hafi ekki verið látin vera á bak við í eldhúsinu svo viðskiptavinir myndu ekki sjá glóðaraugað. „En þá sagði ég: Já, en mér finnst eins og ef hún kynni að elda þá væri hún ekki með glóðarauga,“ sagði hann.
Rife sagði síðan við áhorfendur að hann væri að „prófa þá“ með þessum brandara. „Til að sjá hvort þið séuð skemmtileg eða ekki.“
Eins og fyrr segir hefur hann verið harðlega gagnrýndur á samfélagsmiðlum. Hann ákvað að svara gagnrýninni með því að segja fólki „sem tók brandaranum illa“ að leita sér hjálpar á vefsíðu sem selur hjálma fyrir fólk með sérþarfir.
Það er óhætt að segja að viðbrögð hans hafi ekki fallið í kramið hjá netverjum og hafa sumir rifjað upp gömul augnablik á ferli hans sem mörgum þykir einkar vandræðaleg.
Eins og þegar hann reyndi að daðra við söng- og leikkonuna Zendaya eða þegar hann kvartaði yfir því að það væri erfitt að vera myndarlegur og vöðvastæltur grínisti.
Árið 2015 kom Rife fram í þættinum Wild N‘ Out ásamt Zendaya. Í umræddu atriði var hún með fullan munn af vatni og hann átti að reyna að fá hana til að hlæja svo vatnið myndi spýtast út.
@wildnout Our guy #MattRife swung AND missed 😭 #WildNOut #mattrifecomedy #zendaya #shootyourshoot #flirting ♬ original sound – wildnout
Þegar hún hló ekki að brandara hans reyndi hann aðra nálgun og tók utan um andlit hennar og sagði: „Spýttu þessu vatni út svo ég geti fengið símanúmerið þitt.“
Netverjar hafa haft nóg um myndbandið að segja eftir að það var dregið aftur fram í sviðsljósið og segja margir það vera „asnalegt“ (e. cringe) og „óþægilegt“.
Hvorki Zendaya, núna 27 ára, eða Rife, 28 ára, hafa tjáð sig um atvikið síðan þá.
Rife var hafður að háði og spotti fyrr á árinu þegar hann sagði að hann þyrfti að vera fyndnari en aðrir grínistar því hann væri svo myndarlegur. „Þú vilt ekki ganga á svið og fólk horfir á handleggina þína frekar en að hlusta á þig,“ sagði hann í myndbandi fyrir Men‘s Health Magazine.
@menshealthmag Because who wants to laugh at the really, really ridiculously good-looking person? #mattrife #mattrifecomedy #mattrifeedit #comediansoftiktok #tellingjokes #tryingtobefunny ♬ original sound – Men’s Health