Erla er sálfræðingur og doktor í líf- og læknavísindum. Hún hefur um árabil sérhæft sig í rannsóknum á svefni og meðferðum gegn svefnleysi. Hún er stofnandi og framkvæmdastjóri Betri Svefns, sem er hugræn atferlismeðferð við svefnleysi.
Svefnsérfræðingurinn er gestur vikunnar í Fókus, spjallþætti DV.
Horfðu á þáttinn í heild sinni hér.
Erla segir að um 90 prósent fullorðinna einstaklinga þurfi um sjö til níu tíma svefn á hverri nóttu. Það er persónubundið hversu mikinn svefn fólk þarf, sumir þurfa meiri svefn en aðrir. Það er einnig breytilegt á milli kynja, konur þurfa meiri svefn en karlar.
„Almennt þurfa konur aðeins lengri svefn en karlar. Svefnleysi er líka mun algengara hjá konum,“ segir hún og bætir við að konur virðist einnig finna meira fyrir afleiðingum þess að missa svefn.
Sjá einnig: Neysla á melatónín meðal barna stóraukist hér á landi
„Það hefur meiri áhrif á verki og andlega líðan og fleira hjá konum. Það er ýmislegt sem hefur þarna áhrif. Ýmsar hormónabreytingar sem að konur fara í gegnum, eins og tíðahringurinn. Við erum með miklu flóknara hormónakerfi heldur en karlar og þessi 28 daga tíðahringur hefur margvísleg áhrif á heilsu, líðan, úthald, amtarlyst, svefn og fleira. Breytingaskeiðið er mjög stór þáttur. Meirihluti kvenna á breytingaskeiði upplifa svefnvanda sem því miður verður oft langvarandi ef það er ekki gripið inn í. Svo auðvitað barneignir og að ganga með barn og allt það, og kannski líka þessi streita. Konur eru mun líklegri en karlar að upplifa streitu, sérstaklega ungar konur með börn á heimili.“
Hún segir nánar frá þessu og hvaða áhrif tíðahringurinn hefur á svefninn, eins og á hvaða viku þær eigi að forgangsraða hvíld, í spilaranum hér að ofan. Smelltu hér til að horfa á þáttinn í heild sinni, eða hér til að hlusta á Spotify.