Íslandsvinirnir í dauðarokkssveitinni Cannibal Corpse eru að gefa út litabók. Bókin verður gefin út í byrjun desember og því tilvalin jólagjöf fyrir flösuþeytara.
Cannibal Corpse eru bandarísk hljómsveit, stofnuð árið 1988. Sveitin er almennt talin ein stærsta, ef ekki stærsta, dauðarokkssveit sögunnar. Íslendingar þekkja sveitina vel enda kom hún hingað árið 2007 og hélt tvenna tónleika á NASA við Austurvöll við góðan orðstír.
Sveitin er þekkt fyrir litríkt myndmál og lagatexta, laga á borð við „A Skull Full of Maggots“, „Meat Hook Sodomy“, „Addicted to Vaginal Skin“ og „Necropedophile“.
Það er breska útgáfufyrirtækið Rock ´n Roll Colouring sem mun taka að sér að gefa út bókina. Listamaðurinn sem stendur að bakið myndunum heitir Vince Locke og eru myndirnar meðal annars byggðar á plötuumslögum hans fyrir „Tomb of the Mutilated“, „Butchered at Birth“, „Eaten Back to Life“ og fleiri plata sem Cannibal Corpse hafa gefið út á löngum ferli.
„Þegar ég var að velja myndir fyrir bókina kom það mér á óvart hversu mikið af efni var til á þrjátíu ára samstarfi. Það er sjaldgæft að sjá þetta allt saman á einum stað. Sumar myndirnar varð ég að hafa með, mínar uppáhaldsmyndir og uppáhald hljómsveitarinnar, en sumar voru valdar af því að þær henta einstaklega vel til að lita inn í,“ sagði Locke í tilkynningu. „Ég er alltaf að leika mér og prófa nýja tækni. Ég vona að þið gerið það sama með þessari litabók.“
Hægt er að nota vaxliti, vatnsliti og tréliti til að lita inn í bókina.
„Þið munið ábyggilega þurfa mikið af rauðum, en verið frumleg og gerið þetta eins og þið viljið,“ sagði Locke.
Hljómsveitarmeðlimirnir eru ánægðir með verkið. „Þetta er frábær leið fyrir aðdáendur Cannibal Coprse að njóta hinnar frábæru listar Vincent Locke,“ sagði bassaleikarinn Alex Webster.