Graham Chase Robinson starfaði um árabil sem aðstoðarkona leikarans heimsfræga. Segja má að samband þeirra hafi súrnað hressilega undir lokin og sakaði leikarinn hana um ýmislegt misjafnt, meðal annars að hafa stundað hámhorf á Netflix á fullum launum og að hafa stolið vildarpunktum sem hann hafði safnað sér.
Chase svaraði með því að stefna leikaranum á haustmánuðum 2019 og er málið nú fyrir dómi vestan hafs. Krefst hún þess að fá 12 milljónir Bandaríkjadala, vel á annan milljarð króna, frá leikaranum.
Segir hún meðal annars að leikarinn hafi áreitt hana, lagt hana í einelti og ætlast til þess að hún væri til taks allan sólarhringinn alla daga vikunnar.
Lögmaður Robinson, Brent Hannafan, lýsti því fyrir kviðdómendum í dag að De Niro væri afar „krefjandi“ yfirmaður og ítrekað hneykslað hana með framferði sínu og gert líf hennar erfitt. Þá hafi hann ítrekað kallað hana tík.
Hann rifjaði svo upp að De Niro hafi einu sinni bókstaflega beðið hana um að klóra sér innan klæða á bakinu. Þegar hún spurði hann af hverju hann notaði ekki bakklóruna sem var rétt hjá hafi hann sagt að það væri betra þegar hún klóraði honum.
De Niro, sem er orðinn áttræður, var ekki beint hress í dómssal ef marka má umfjöllun New York Post um málið. „Þetta er allt kjaftæði,“ sagði hann þegar hann var spurður út í ásakanir fyrrverandi aðstoðarkonu sinnar.
Lögmaður De Niro sagði að Robinson hefði alltaf leikið fórnarlambið í samskiptum þeirra og hún væri augljóslega hungruð í peninga.
Búist er við því að réttarhöldin taki um tvær vikur í það heila.