fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fókus

Rán Flygenring hlaut barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2023

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 31. október 2023 19:50

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rán Flygenring rithöfundur hlaut fyrr í kvöld barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2023 fyrir myndabókina Eldgos.  Rán hlýtur verðlaunin fyrir myndabók fulla af sjónrænum sprengikrafti um áhrifin sem villt og óhamin náttúra hefur á fólk.

Rán Flygenring tók við verðlaununum við verðlaunaathöfn Norðurlandaráðs í Norska óperu- og balletthúsinu í Ósló. Norski rithöfundurinn Maja Lunde afhenti verðlaunin. Rán hlýtur verðlaunagripinn Norðurljós og 300 þúsund danskar krónur.

Rökstuðningur dómnefndar

Verðlaunahafinn í ár hefur skapað myndabók fulla af sjónrænum sprengikrafti um áhrifin sem villt og óhamin náttúra hefur á fólk. Mynd og texti fléttast listilega saman í fjöruga og sprenghlægilega sögu um sundurleitan hóp ferðamanna við gosstöðvar. Frásögnin iðar af lífsþrótti og bæði fangar og skopast að hrifningu okkar á öfgafullum náttúrufyrirbærum. En hún dregur einnig fram hvernig mótsagnakenndar tilfinningar vakna bæði þegar jörð klofnar, hraun flæðir og ný fjöll verða til og þegar við stöndum frammi fyrir hversdagsógnum á borð við lúsafaraldur eða sjáum nánasta umhverfi okkar yfirfyllast af ferðamönnum. Frásögnin er þannig þrungin spennu sem er sprottin úr samspilinu milli hins ægistóra og hins agnarsmáa.

Myndirnar í bókinni eru sneisafullar af forvitnilegum og fyndnum smáatriðum sem hrífa hinn unga lesanda með sér. Litanotkunin er hnitmiðuð og merkingarhlaðin og endurspeglar viðfangsefnið á markvissan hátt. Biksvart gjallið birtist lesandanum í japönsku bleki og glóandi hraunfljótið kallast á við heita litina í forstofudregli. Við hliðina á þessu marglita sjónarspili verða fölar manneskjurnar eins og áminning um að við erum öll, rétt eins og túristarnir, bara hér í heimsókn. Er náttúran eingöngu til okkur til skemmtunar eða ættum við að taka meiri ábyrgð á samskiptum okkar við hana?

Eldgos kveikir von um að við getum fundið leið til að lifa í sátt við náttúruna.

Um barna- og unglingabókmenntaverðlaunin

Barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs hafa verið veitt frá árinu 2013 og er ætlað að efla og vekja athygli á barna- og unglingabókmenntum á Norðurlöndum. Alls voru 14 norrænar myndabækur, barnabækur og unglingabækur tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs í ár.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Perla leitaði sér aðstoðar sex árum eftir að dóttir hennar lést – „Endaði grátandi hjá heimilislækninum og sagði honum að ég gæti ekki meira“

Perla leitaði sér aðstoðar sex árum eftir að dóttir hennar lést – „Endaði grátandi hjá heimilislækninum og sagði honum að ég gæti ekki meira“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Deitið ætlaði að hafa hann að fífli – „Þessar stelpur héldu að ég væri vitlaus, sem ég er ekki“

Deitið ætlaði að hafa hann að fífli – „Þessar stelpur héldu að ég væri vitlaus, sem ég er ekki“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Simmi Vill birtir fyrstu paramyndirnar

Simmi Vill birtir fyrstu paramyndirnar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Fall norskrar konu á Austurlandi vekur mikla kátínu – „Skóladæmi um hvernig á að detta með mýkt“

Fall norskrar konu á Austurlandi vekur mikla kátínu – „Skóladæmi um hvernig á að detta með mýkt“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Níu ára sambandi Alberts og Guðlaugar lokið

Níu ára sambandi Alberts og Guðlaugar lokið
Fókus
Fyrir 5 dögum

Raunveruleikastjarnan Ingi segir varasamt að fara á stefnumót á Íslandi – „Eins og að taka þátt í rússneskri rúllettu“

Raunveruleikastjarnan Ingi segir varasamt að fara á stefnumót á Íslandi – „Eins og að taka þátt í rússneskri rúllettu“