Eigendur veitingastaðarins Boombay Bazaar í Ármúla, hjónin Ágúst Reynir Þorsteinsson, og Kittý Johansen, hafa sett íbúð sína við Hallakur 2b í Garðabæ á sölu. Smartland greinir frá og að hjónin séu skilin.
Íbúðin er 117 fm á annarri hæð í fjölbýlishúsi sem byggt var árið 2007.
Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu með útgengi á svalir, hjónaherbergi, svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Í stofunni prýðir risastórt listaverk eftir Laufeyju Johansen, systur Kittýar, einn vegginn að hluta.
Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.