„Það var alveg svona kafli í mínu lífi sem ég væri til í að stroka út, en aftur á móti, ef maður strokar þetta alveg út og reynir að gleyma þessu þá lærir maður ekki af þessu,“ segir tónlistarmaðurinn Júlí Heiðar Halldórsson.
Júlí Heiðar er gestur vikunnar í Fókus, spjallþætti DV í umsjón Guðrúnar Óskar Guðjónsdóttur.
Sjá einnig: Fannst hann þurfa að gera upp fortíðina fyrir framtíðina
Í þættinum segir Júlí Heiðar frá tímabili í hans lífi þar sem hann missti tökin á drykkju og djammi.
„Ég fór svolítið út af sporinu. Það var bara rosa gaman sko, aðeins of gaman,“ segir hann.
Síðan hætti að vera eins gaman. „Ég var búinn að missa tök á skemmtuninni. Það var alveg svona kafli í mínu lífi sem ég væri til í að stroka út en aftur á móti, ef maður strokar þetta alveg út og reynir að gleyma þessu þá lærir maður ekkert mikið af þessu.“
Júlí segir að að hann hafi verið „svolítið úti á túni“ frá árunum 2012 til 2025. „Ég var óhamingjusamur,“ segir hann og bætir við að lífið á þessum tíma hafi snerist um næstu helgi.
Allt breyttist eftir að sonur hans fæddist.
„Ég myndi segja að lífið hafi byrjað aftur. Það var svona nýtt start eiginlega. Þessi ábyrgð að verða foreldri, þetta er alveg hellingur,“ segir hann.
„Það svolítið svona breytti öllu. Ég var kominn inn í leikaranámið árið 2015 og þegar ég var þar þá köttaði ég, bæði á vini, sem voru ekki á sömu leið og ég, og líka bara allt ruglið.“
Hann segir nánar frá þessu í spilaranum hér að ofan. Horfðu á þáttinn í heild sinni hér.
Hlustaðu á Júlí Heiðar á Spotify eða YouTube og fylgdu honum á Instagram.