Það kom mörgum á óvart að mæðgurnar hafi ákveðið að selja staðinn og útskýrir Tobba ástæðuna í Fókus, spjallþætti DV.
Það var einfaldlega of mikið að gera fyrir of lítinn stað. „Við hefðum þurft stærra húsnæði og opna eiginlega annan stað en við sprengdum húsnæðið utan af okkur,“ segir hún. Granólabarinn var ekki aðeins að framleiða vörur fyrir staðinn sjálfan heldur einnig veislubakka fyrir fyrirtæki, kökur fyrir Te og kaffi og fleira. Það var það mikið að gera að Tobba „djúsaði“ yfir sig og endaði í skurðaðgerð og með spelkur.
Sjá einnig: Missti tilfinningu í fingrum og þurfti skurðaðgerð eftir of mikið álag
„Mig langaði ekki að rekja einhverja keðju, það er fullt af fólki sem er gott í því en það var ekki hugmyndin mín. Mig langaði að geta boðið upp á sykurlausar, hollar og góðar veitingar. Ég sá þetta fyrir mér sem eitthvað aðeins krúttlegra. Ég og mamma með eins svuntur að dúllast,“ segir Tobba og bætir við að raunin hafi verið önnur.
Að lokum var komist að þeirri niðurstöðu að best væri að selja staðinn. „En ég á vörumerkið áfram og leigi Lemon það. Þannig Lemon er núna að selja djúsa eftir mínum uppskriftum og er að fara að bæta við kókoskúlum, kaffisjeik og svona vinsælustu uppskriftunum. Þannig þetta er svona besta niðurstaðan fyrir mig, að hlutirnir verða framleiddir áfram og seldir en ég þarf ekki að vera á djúsvélinni.“
Hún útskýrir þetta nánar í spilaranum hér að ofan.
Hún ræðir nánar um granólaævintýrið, ADHD-greininguna og gönguna frá Frakklandi til Spánar í þættinum sem má horfa á í heild sinni hér. Einnig er hægt að hlusta á þáttinn á Spotify.