fbpx
Þriðjudagur 16.júlí 2024
Fókus

,,Mamma var ólétt að syrgja pabba minn 16 ára gömul”

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 23. október 2023 20:30

Chris Burkard Mynd: Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

,,Ég fæ aldrei nóg af Íslandi og hef elskað landið frá því ég kom hingað”, segir Chris Burkard ljósmyndari sem undanfarin ár hefur deilt ljósmyndum frá Íslandi með milljónum fylgjenda sinna. Chris, sem er nýjasti gesturinn í hlaðvarpi Sölva Tryggvasonar  segir íslenska æðruleysið kristallast í setningunni ,,Þetta reddast.“

,,Ég fann það strax og ég kom hingað að það var eitthvað algjörlega sérstakt hér sem maður finnur hvergi annars staðar. Fólkið sem byggði þetta land hefur þurft að þróa með sér ótrúlega seiglu og þrautseigju, enda aðstæðurnar oft gríðarlega harðar. Eftir að ég fór að dvelja hér lengur fór ég að skilja betur þjóðarsálina og eins og annars staðar eru vandamál og erfiðleikar, en það er eitthvað alveg sérstakt æðruleysi í Íslendingum, sem mér finnst kristallast í setningunni: ,,Þetta reddast”. Það tekur mann tíma að skilja hvað þessi setning útskýrir margt í hugarfari Íslendinga. Þegar fólk hefur þurft að búa við aðstæður eins og voru hér á árum áður og eru stundum enn, þá verður til hugarfar sem er allt öðruvísi en á stöðum þar sem veðrið er eins allt árið og það er hægt að ganga að hlutum vísum,” segir Chris, sem nú hefur flutt alfarið til Íslands, frá sólinni í Kaliforníu, þar sem hann hefur varið stærstum hluta ævinnar.

,,Ég fæ innilokunarkennd ef ég dvel lengi í stórborgum og náttúran togar alltaf í mig. Ég skil vel að fólki finnist það skrýtið að flytjast frá Kaliforníu til Íslands og á ákveðinn hátt er það líklega rétt. En bæði ég og konan mín vorum farin að upplifa ákveðna stöðun og skort á vexti. Lífið má ekki verða of auðvelt og ég er ekki hannaður fyrir að festast í þægindaramma. Og alveg frá því að ég kom hingað fyrst fann ég eitthvað sem hefur togað í mig alveg síðan. Svo hefur það bara aukist eftir því sem ég hef verið hér meira, fengið að sjá stærri hluta af landinu og myndað við ótrúlegar aðstæður.”

Alinn upp við erfiðar aðstæður

Chris kemur úr erfiðum aðstæðum, þar sem móðir hans var aðeins 17 ára þegar hún eignaðist hann og faðir hans lét lífið á meðan á meðgöngunni stóð.

,,Blóðfaðir minn lét lífið á meðan ég var í maganum á móður minni, þannig að mamma var ólétt að syrgja hann aðeins 16 ára gömul. Það er rosalegt fyrir mig að hugsa um stöðuna sem hún var í á þessum tíma og hve sterk hún var að fara ekki í fóstureyðingu. Ég held að það að koma úr þessum aðstæðum hafi mótað mig gríðarlega. Ég þróaði ungur með mér mikið sjálfstæði, dugnað og vinnusemi, en síðar þurfti ég að leita mér aðstoðar sérfræðinga til að vinna úr æskunni og ýmsum áföllum. 

Lykillinn að kunna að segja nei

Fylgjendur Chris á samfélagsmiðlum telja milljónir og aðeins á Instagram fylgja honum fjórar milljónir. Hann segir lykilinn að því að skila góðu starfi vera að kunna að segja nei, kunna að endurnýja sig reglulega og tengja við ástríðuna sem kom honum af stað þegar hann var að byrja.

,,Það er líka lykilatriði að týna sér ekki í viðbrögðum annarra, sérstaklega þegar samfélagsmiðlarnir eru orðnir stórir. Það er mjög auðvelt að fara í kulnun og þreytu ef maður endurnýjar sig ekki stanslaust og fyllir glasið sitt mjög reglulega. Alveg sama hversu skemmtilegt starfið þitt er og hversu mikið þú elskar það í byrjun, þá mun glansinn fara á einhverjum punkti. Það verður alltaf þannig í öllum störfum að fólk upplifir hæðir og lægðir, alveg sama hvað maður fær mikið borgað, eða hve margir dást að störfum manns. Mín leið til að halda í ástríðuna í því sem ég geri er að fylla orkuna mína og gera hluti sem hlaða mig og kunna að segja nei. Hvort sem það er hreyfing, tími með fjölskyldu, hlúa að heimilinu eða hvað svo sem virkar fyrir þig. Svo fer ég í kalda potta, geri yoga og reyni að huga að heilsunni alla daga.”

Störfin sem Chris vinnur krefjast þess af honum að halda sér í góðu líkamlegu formi, þar sem hann myndar oft við mjög krefjandi aðstæður og hefur hann einnig myndað afreksíþróttafólk á meðan það er í keppni.

,,Stundum þarf ég að gera mitt besta til að halda í við fólk á heimsmælikvarða með búnaðinn og ef ég á að geta skilað vinnunni minni af mér verð ég að vera í toppstandi. Ég hef stundað mikið af íþróttum í gegnum tíðina og það kemur að góðum notum í vinnunni minni. Ég er ekki nálægt því að vera á heimsmælikvarða sem íþróttamaður eins og sumt af fólkinu sem ég mynda, en er ágætlega á mig kominn,” segir Chris, sem talar þarna af þó nokkurri hógværð, enda hefur hann hjólað þvert yfir Ísland við mjög erfiðar aðstæður, hlaupið Laugaveginn á góðum tíma og hann sigraði WOW Cyclothon á sínum tíma og sló ein­stak­lings­met keppn­inn­ar í leiðinni.

,,Minningarnar af keppninni eru frábærar. Það voru regnbogar og fallegur vindur og svo allt í einu á suðurströndinni varð fjandinn laus og ég hélt á tímabili að ég myndi fjúka á hliðina. En ég stoppaði ekki, hélt áfram, nýtti mér meðvindinn og þegar upp var staðið kom ég í mark á býsna góðum tíma. Þessi keppni er ein af fjölmörgum ótrúlegum minningum sem ég á af tíma mínum hér og vonandi verða þær miklu miklu fleiri.”

Hægt er að nálgast viðtalið við Chris og öll viðtöl og hlaðvörp Sölva Tryggvasonar á solvitryggva.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 6 dögum

Svali lítur til baka á kostina og gallana við að flytja til Tenerife – „Að læra að sigrast á aðstæðum annars staðar“

Svali lítur til baka á kostina og gallana við að flytja til Tenerife – „Að læra að sigrast á aðstæðum annars staðar“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Þekktustu „besties“ landsins kynna nýtt verkefni – Frumsýning á háleynilegum stað í hjarta höfuðborgarinnar

Þekktustu „besties“ landsins kynna nýtt verkefni – Frumsýning á háleynilegum stað í hjarta höfuðborgarinnar