Leikkonan Jada Pinkett Smith varpaði fram sprengju á dögunum þegar hún greindi frá því að hún og eiginmaður hennar til 26 ára, leikarinn Will Smith, hafi skilið að borði og sæng fyrir sjö árum.
Hún sagði að þau væru enn gift í lagalegum skilningi og að undanfarin sjö ár hafi þau mætt á viðburði sem ein heild, eins og á umtöluðu Óskarsverðlaunahátíðina árið 2022. En á bak við tjöldin voru þau ekki lengur saman. Hún greindi frá þessu í nýju sjálfsævisögu sinni.
Þetta kom fólki verulega á óvart, sérstaklega þar sem Will Smith sló grínistann Chris Rock eftirminnilega utan undir og sagði honum að tala ekki um „eiginkonu“ hans á umræddri Óskarsverðlaunahátíð.
Sjá einnig: Will Smith bregst við opinberun eiginkonunnar
Játning leikkonunnar hefur látið aðdáendur sjá fortíðina í nýju ljósi, meðal annars gamlar myndir af Will Smith og leikkonunni Margot Robbie.
Í lok árs 2013 fóru myndir af þeim í dreifingu, en á þeim tíma voru þau bæði að taka upp kvikmyndina Focus.
Fjölmiðlar birtu myndirnar og sögðu vitni, sem voru í veislunni þar sem myndirnar voru teknar, að leikarinn hafi ekki hagað sér eins og giftur maður.
„Hann var ekki að láta eins og giftur maður, hann gaf engin merki um að hann væri í sambandi. Hvaða gifti karlmaður myndi fara inn í myndavélabás með kynþokkafullri 23 ára konu og byrja að afklæða sig?“ sagði heimildarmaður Star Magazine á sínum tíma, sem varð vitni að atvikinu.
„Þau voru að láta eins og ástfangið par.“
Í ljósi játningar Jada spyrja aðdáendur: Var eitthvað til í þessum slúðursögum? Var eitthvað á milli Will Smith og Margot Robbie?