Falleg íbúð á tveimur hæðum á Nesvegi á Seltjarnarnesi er komin í sölu á fasteignavef DV.
Um er að ræða 114,8 fermetra eign, á tveimur hæðum, í fjórbýli. Eignin er með sérinngangi og tvennum svölum og fallegu útsýni.
Eignin skiptist í forstofu, sjónvarpshol, eitt herbergi, gestabaðherbergi, þvottahús og geymslu á neðri hæði. Á efri hæð er stofa með arinn og útgengi á svalir í suður, borðstofa, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi. Efri hæð er á tveimur pöllum og öll parketlögð með massífu parketi með fiskibeinamynstri á gólfum. Fallegir loftgluggar sem hleypa góðri birtu í íbúðina og mikil lofthæð á efri hæð.
Þú getur lesið nánar um eignina og skoðað fleiri myndir á fasteignavef DV.