Elís Árnason, eigandi veitingastaðarins Sport & grill og kaffihússins Adesso, hefur sett íbúð sína í Andarhvarfi 7 í Kópavogi á sölu.
Um er að ræða 180,3 fermetra eign á annarri hæð, auk bílskúrs 23,8 fm.
Eignin skiptist í rúmgóða stofu sem í dag er nýtt sem sjónvarpsstofa, setustofa og borðstofa. Stórir gluggar í alrými sem gerir íbúðina sérlega bjarta. Gengið er út á svalir frá stofu með glæsilegu útsýni yfir Elliðavatn og fjöllin í kring.
Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni og hægt að bæta því fjórða við, eldhús, baðherbergi og þvottahús innan íbúðar. Geymsla er í bílskúrnum.
Þú getur lesið nánar um eignina og skoðað fleiri myndir á fasteignavef DV.