Hrönn Sigurðardóttir, afrekskona í ólympíufitness og eigandi verslunarinnar BeFit, berst nú við skætt fjórða stigs krabbamein. Var hún útnefnd manneskja vikunnar í morgunþættinum Ísland vaknar á K100. Kristín Sif vakti jafnframt athygli á átakinu og myllumerkinu #einnfyrirhronn sem vinir Hrannar í fitness-heiminum byrjuðu með nýlega til að standa við bakið á Hrönn.
„Ef þú ert í ræktinni í dag og þetta er orðið erfitt þá tekuru einn fyrir Hrönn,“ sagði Kristín Sif. „Þeir sem þekkja Hrönn vita að hún er framúrskarandi manneskja. Hún er ein af okkar allra bestu konum í fitness. Hún er ein af þremur sem hafa orðið atvinnumenn í þessu sporti á Íslandi.“
„Þeir sem þekkja Hrönn vita að hún er algjör húmoristi. Hún er svo mikil baráttukona, hún er svo ógeðslega þrautseig og ógeðslega mikill töffari að hún er klárlega manneskja vikunnar hjá mér,“ sagði KristínSif áður en hún gat ekki lengur haldið aftur af tárunum.
„Ég vissi að þetta myndi gerast, ég vissi að ég myndi fara að gráta,“ sagði Kristín þá í gegnum tárin.
Þeir sem vilja leggja Hrönn lið geta lagt inn á reikning sem er á nafni Heiðrúnar, systur Hrannar:
Kennitala: 290482-3809
Banki: 0511-14-031999
Hér má hlusta á Kristínu Sif segja frá manneskju vikunnar á K100.