Gunnar Axel Gunnarsson, bæjarstjóri sveitafélagsins Voga, braut hefð á bæjarskrifstofunni eftir óvenjuleg erindi sem íbúi Voga bar fram á fundi þeirra í dag.
Gunnar segir frá þessu óvenjulega og skemmtilega erindi í færslu á Facebook:
„Í dag mætti 10 ára drengur á bæjarskrifstofuna og óskaði eftir fundi með bæjarstjóranum. Erindið var harla óvenjulegt en kannski hefur hann fengið veður af matarsmekk undirritaðs, enda var hann mættur til að upplýsa mig um að hann væri, ásamt nokkrum jafnöldrum sínum farinn að baka og selja pizzur. Þessu til staðfestingar gaf hann mér þessa auglýsingu sem þessir ungu frumkvöðlar útbjuggu til að markaðssetja þetta skemmtilega framtak sitt,” segir Gunnar og bætir við:
„Þó ekki sé hefð fyrir því að hengja upp auglýsingar á bæjarskrifstofunni þá ákváðum við að ef einhvern tíma væri ástæða til að rjúfa þá hefð þá væri það núna.”
Pizzurnar baka þau eftir skóla þrisvar í viku og bjóða að sjálfsögðu upp á heimsendingu. Því er lag fyrir pizzuaðdáendur í Vogum að hafa hraðar hendur, spara sér eldamennskuna og styrkja þetta skemmtilega framtak. Líklega er þó aðeins boðið upp á heimsendingu í Vogum.