Bruce Springsteen hefur tilkynnt um að öllum tónleikum hans út árið verði frestað vegna veikinda sem goðsögnin hefur glímt við undanfarin mánuð. Margir aðdáendur Springsteen urðu fyrir miklum vonbrigðum þegar tveimur tónleikum tónlistarmannsins var frestað í ágústmánuði útaf veikindum og voru uggandi yfir því að það var ekki útskýrt frekar.
Nú liggur fyrir Springsteen, sem er 74 ára gamall, glímir við magasár. Er haft eftir honum í tilkynningunni að hann sé á batavegi og geti ekki beðið eftir því að stíga aftur á svið á næsta ári fyrir framan aðdáendur sína.
Þeir sem hafa þegar keypt miða á tónleika í lok þessa árs munu geta nýtt þá á nýjum dagsetningum en annars verða endurgreiðslur í boði