Bandaríska leikkonan Jennifer Aniston er stórglæsileg á forsíðu og í myndaröð nýjasta tölublaðs CR Fashion Book, sem ber heitið, Muses, og kemur út 3. október. Tölublaðið er jafnframt 10 ára afmælisútgáfa blaðsins. Aniston deildi myndunum á Instagram í dag.
Aniston tekur jakkafatalookið á annað stig í fatnaði frá tískurisanum Valentino, þar sem hún klæðist bikiní við svart bindi, svartar síðbuxur og stuttan hvítan blazer.
Á annarri mynd má sjá hana í bikíni og hælum frá YSL, þar sem hún heldur á pallíettukápu frá Rick Owens. Einnig klæðist hún buxnasetti frá Versage, kápu frá JW Andersen og leðurbrjóstahaldara frá WARDROBE.NYC.