Útvarpsstjarnan Kristín Sif Björgvinsdóttir og tónlistarmaðurinn Stefán Jakobsson gengu í það heilaga á laugardaginn síðastliðinn.
Brúðkaupið var í Mývatnssveit, þar sem Stefán er búsettur. Bergsveinn Arilíusson, Beggi í Sóldögg, gaf hjónin saman.
Sneak preview klippa/Frá Eiríki Hafdal - REC Media
Á meðal gesta voru hljómsveitarfélagar Stebba í DIMMU, þeir Egill Örn Rafnsson, Ingólfur Geirdal og Silli Geirdal, og eiginkona Silla, Ólöf Erla Einarsdóttir, hönnuður og eigandi SVART. Fyrrum trommari DIMMU, Birgir Jónsson, forstjóri PLAY og eiginkona hans, Lísa Ólafsdóttir, eigandi Madison ilmhús, söngkonurnar Erna Hrönn Ólafsdóttir og Stefanía Svavarsdóttir, og Haukur Henriksen, verkefnastjóri RIGG viðburða, eru mætt ásamt mökum, og ljósmyndarinn Mummi Lú sem sér um að festa athöfnina og veisluna á filmu.
„Við erum meir, þakklát og hamingjusöm með fullkomna helgi umkringd okkar allra besta og skemmtilegasta fólki,“ sagði Kristín í samtali við DV um daginn.