Bandarísku hjónin Cathy og Roy Aukamp voru nýflutt á heimili sitt í New Jersey þegar það flæddi inn í kjallara þeirra eftir óveður.
Þau þurftu að taka kjallarann í gegn og þau voru að fjarlægja gifsplötu í einum veggnum hrundu fullt af tómum áfengisflöskum úr veggnum.
Hjónin birtu myndband þar sem má sjá þau verulega hissa yfir óvæntu innihaldi veggjarins.
View this post on Instagram
Netverjar skiptust í fylkingar. Sumum þótti þetta mjög fyndið á meðan aðrir sögðu að það væri ekkert fyndið við þetta, fyrrverandi eigandi hússins hafi greinilega átt við áfengisvanda að stríða.
Myndbandið vakti mikla athygli, svo mikla að fyrrverandi eigandinn sá það og hafði samband við hjónin.
„Manneskjan sem setti flöskurnar í vegginn sá myndbandið og hafði samband við okkur. Hann sagði að það væru mörg hundruð fleiri flöskur í veggjunum en hann hefur verið edrú í þrjú ár núna,“ sagði Cathy.
Í færslunni hér að neðan útskýra þau hvernig manninum tókst að setja allar þessar flöskur í veggi hússins.
View this post on Instagram