Áhrifavaldurinn Sunneva Einarsdóttir fagnaði fjögurra ára sambandsafmæli með kærasta sínum, Benedikt Bjarnasyni, um helgina.
Sunneva er einn vinsælasti áhrifavaldur landsins með yfir 56 þúsund fylgjendur á Instagram og 28 þúsund á TikTok. Hún birtir yfirleitt myndir af sér í alls konar glæsilegum klæðnaði, myndir frá ferðalögum eða ræktinni.
Hún hefur haldið kærastanum að mestu frá sviðsljósinu. Það kemur fyrir að hún birtir myndir af þeim saman en hann er í litlu gestahlutverki á samfélagsmiðlunum hennar og hefur venjulega ást þeirra fengið að blómstra í friði.
En þegar er tilefni til að fagna, þá þarf að fagna. Á fjögurra ára sambandsafmæli þeirra um helgina birtu þau saman nokkrar fallegar myndir og er ljóst að þau hafa upplifað ýmis ævintýri saman.
Fókus óskar parinu til hamingju með ástina.