Stórleikarinn Bradley Cooper fer með hlutverk tónskáldsins og hljómsveitarstjórndans goðsagnarkennda, Leonard Bernstein í nýrri stórmynd sem væntanlegan er í kvikmyndahús og streymisveituna Netflix um jólin. Í myndinni, sem ber heitið Maestro, er skoðað kafað í saumana á sambandi Bernstein við eiginkonu hans, Felicia Montealegre sem leikin er af Carrey Mulligan.
Það að Cooper tæki að sér aðalhlutverk myndarinnar þrátt fyrir að vera ekki gyðingur eins og Bernstein hefur sætt nokkurri gagnrýni en það var þó hljóm eitt miðað við þá reiði sem blossaði upp þegar myndir af Cooper í hlutverkinu fóru að birtast. Þar má sjá að leikarinn skartar myndarlegu gervinefi og urðu netverjar æfir í kjölfarið og fóru að birta reiðiskeyti á samfélagsmiðlum sem merkt voru tagginu „Jewface“. Er nefið sagt vera alltof stórt og sé birtingamynd kynþáttarfordóma rétt eins og svokallað Blackface, þar sem að andlit einstakklings er málað svart til þess að líkja eftir hörundsdökku fólki, og mikil umræða hefur verið um.
Telja margir að umræðan geti haft áhrif á þá þann draum Cooper að landa Óskarsverðlaununum eftirsóttu en hlutverkið í myndinni er talið vera kjörið tækifæri til þess.