Hjónin giftu sig í Las Vegas í fyrra en héldu því leyndu í nokkra mánuði og sögðust ætla að halda alvöru brúðkaup seinna. Í gær var svo komið að því og var slegið upp þriggja daga veislu af tilefninu. Á fimmtudag hófst dagurinn með æfingu sem Tara Sif stjórnaði, síðan fóru vinirnir í vínsmökkun og skoðuðu staðinn þar sem athöfnin mun fara fram. Kvöldinu lauk svo með ljúfum tónum frá Jökli söngvara Kaleo.
Sjá einnig: Slegið upp í þriggja daga veislu á Ítalíu til að fagna Töru Sif og Elfari Elí
Í gær var síðan athöfnin sjálf og hafa gestir verið duglegir að birta myndir á Instagram, en meðfylgjandi myndir eru úr story Töru Sifjar.