Hjónin Spessi Hallbjörnsson ljósmyndari og Áróra Gústafsdóttir hafa sett íbúð sína í Rauðagerði á sölu.
„Hæ folkens! Við erum komin með samþykkt tilboð sjálf en þurfum að koma þessari eign í góðar hendur sem fyrst. Geggjað partíhús! Hér hafa verið haldin risa matarboð – frábært tækifæri fyrir þá sem elska að elda mat,“ segir Spessi á Facebook.
Íbúðin er fimm herbergja, 155,1 fm, þar af bílskúr 22,3 fm og geymsl1 5,2 fm, í fjölbýli byggt árið 1960. Íbúðin skiptist í forstofu, gang/hol, eldhús, borðstofu, stofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi.
Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.