Elín María Björnsdóttir og Claes Nilsson giftu sig um helgina. Heilmikið stuð var í veislunni eins og sjá má á Instagram.
Hjónin eiga dóttur saman, Elín María átti tvær dætur fyrir og Claes þrjú börn.
Elín María varð landsþekkt þegar hún sá um Brúðkaupsþáttinn Já sem sýndur var á Skjá einum. Síðan þá hefur hún fengist við fjölbreytt verkefni.