Fjölmargar konur kjósa það að ferðast einar á ferðalögum sínum víðs vegar um heiminn. Í grein á ferðavefnum Traveloffpath er fullyrt að yfir 70% ferðasérfræðinga segi konur mun líklegri til að ferðast einar en karlar, en þrjár af hverjum fjórum bandarískum konum hafa þegar ferðast einar.
Hérlendis hefur Guðrún Ólafsdóttir ferðalangur haldið vinsæl námskeið hjá Endurmenntun um ferðamátann að ferðast ein/n eða eitt, en námskeiðið heitir: Að ferðast ein um heiminn, frelsi, ævintýri og áskoranir.
Greinarhöfundur Traveloffpath hefur ferðast ein í fimm ár og á þeim tíma heimsótt yfir 40 lönd. Samstarfskonur hennar hafa sömuleiðis ferðast einar til fjölmargra landa. Settust þær því miður og útbjuggu lista yfir þau tíu lönd sem best eru fyrir konur að ferðast einar til og er Ísland efst á listanum.
Ísland
Kvenkynsferðalangar elska smæð landsins, vingjarnlega heimamenn og einstaka náttúrufegurð. Svo ekki sé minnst á að Ísland er öruggasta land í heimi samkvæmt Global Peace Index, en landið hefur haldið fyrsta sæti þar síðan árið 2008.
Mælt er með að fara í dagsferðir. „Þegar þú ferðast til suðurlandsins í 10 tíma dagsferð með fullt af ókunnugum er nánast ómögulegt annað en að eignast vin eða tvo á leiðinni.“
Þar sem þjóðin er fámenn þá er gististaðurinn hlýrri og persónulegri, fólk á staðnum muni nafn ferðamannsins og bryddi upp á samræðum.
Slóvenía
Landinu er líkt við ævintýraland Narníu í bókum C. S. Lewis. Þar má finna heillandi skóga og kastala sem sóma sér vel í ævintýrum. Landið er jafnframt það sjöunda öruggasta í heimi samkvæmt Global Peace Index. 85% kvenna finnst öruggt að ganga einar á nóttunni og staðfestir ferðalangurinn Claire Ramsdell það í viðtali við BBC, en hún gekk um borgina að næturlagi og myndaði og sagði að henni hefði fundist hún alveg örugg. „Þetta hefði getað verið erfið upplifun annars staðar, en í þessu tilviki var þetta dásamlegt.“
Sameinuðu arabísku furstadæmin
Lúxus einkennir Sameinuðu arabísku furstadæmin, en konurnar á Traveloffpath segja að þar ríki einnig gestrisni og öryggi. Abu Dhabi og Dubai eru jafnan á topp 20 lista öruggustu borga heims, sem gerir þær að ákjósanlegu vali kvenkyns ferðalanga.
Yfirmaður vefsíðunnar Kashlee Kucheran býr sjálf í Dubai og segist mest kunna að meta þar öryggi og þægindi. „Fólk skilur Ferrari og Bugatti bíla sína eftir ólæsta með lyklana inni og gluggana niðri. Þú sérð konur frá mismunandi löndum ganga með öruggum hætti um borgina, jafnvel eftir myrkur. Ég hef ekki fundið fyrir óþægindum hér.“
Japan
Greinarhöfundur segir Japan fullkomið fyrir kvenkyns ferðalanga þar sem japanskt samfélag er einfaldlega byggt fyrir fólk til að gera hlutina eitt. Veitingastaðir eru venjulega með borð fyrir einn og einnig er gert ráð fyrir einstaklingum við barinn kjósi fólk að sitja þar. Sjaldgæft er að dýrara sé að ferðast einsamall og er öll gisting sniðin að einstaklingum líka.
Japan er þriðja öruggasta land Asíu og níunda öruggasta land í heimi samkvæmt Global Peace Index. Japönsk neðanjarðarlestarkerfi eru venjulega með vagna sem eingöngu eru fyrir konur, og eru þeir merktir með stórum bleikum límmiðum á japönsku og ensku. Ef þig vantar aðstoð á ferðalaginu eru heimamenn yfirleitt fúsir til að veita aðstoð og leiðbeina.
Albanía
Frábær valkostur fyrir kvenkyns ferðalanga. Viðráðanlegt verð, sögulegir bæir og fleira gera Albaníu að einu fjölbreyttasta og skemmtilegasta landi Balkan-skagans. Gestrisni heimamanna er mikil.
Næstu lönd í listanum eru:
6. Argentína
7. Írland
8. Oman
9. Króatía
10. Malasía