Útvarpsmaðurinn Gústi B og Big Income Pally ræddu nýlega frétt DV í þættinum Veislan með Gústa B á FM957 í dag.
„Gústi B kaupir sér Rolex, Prettyboitjokko kaupir dýra sundbrók og sportbíl, Gummi kíró gengur í Gucci. Um svona lagað les maður daglega í fjölmiðlum. Hvaðan kemur þessi asnalega efnishyggja?“ spurði fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason í færslu á Facebook, sem vakti mikil viðbrögð, en um 200 athugasemdir hafa verið skrifaðar við færsluna. DV gerði frétt úr sem vakti einnig viðbrögð.
Sjá einnig: Menningarelítan búin að fá nóg af Gumma Kíró og Prettyboytjokkó – „Hvaðan kemur þessi asnalega efnishyggja?“
„Egill Helga elskar ekki Gústa B. þessa dagana. Þú ert kominn með stærstu stjörnur landsins að hrauna yfir Gústa B, Prettyboytjokkó og Gumma Kíró,“ segir Big og segist Gústi B. ekki hafa tekið eftir athugasemdunum.
„Egill Helga hendir í Facebook-póst um að hann skilji ekkert í þessari efnishyggju, Gústi B. að kaupa sér Rolex, Prettyboytjokkó að keyra um á Porsche og í merkjafötum og Gummi kíró í Gucci. Hann var bara brjálaður yfir þessu, hann er náttúrulega í listaelíutunni og þau vilja bara að allir séu bara að kaupa sér eitthvað á nytjamarkaði, séu umhverfisvænir og láti listina tala. Og ég bara: Ok þetta er fyrirsjáanlegt hjá Agli. Svo kom rothögg frá okkar manni Pálma Gestssyni sem hraunaði yfir þig og sagði: „Úrkynjun,“ segir Big og hlær. „Ertu úrkynjaður Gústi minn? Síðan kom endanlegt rothögg frá manninum sem er eini maðurinn sem hefur sagt nei við að koma í veisluna.“
„Úff ekki lesa þetta upp,“ svarar Gústi B.
Big heldur áfram að lesa athugasemdirnar við færslu Egils. „Bjöggi Halldórs líka, þetta er rosalegt teymi sem er að hrauna yfir ykkur. „Öryggisleysi“, ertu að finna fyrir öryggisleysi? Svo kemur Bubbi Morthens og hendir í „Umbúðir ekkert innihald.“
„Þetta er rosalegt að Bubbi hafi hent í þetta. Umbúðir, ekkert innihald, hvað af því ég keypti mér úr? Og hann á nýjustu gerðina af Jagúar, þegar hann var jafngamall og ég var hann að kaupa eiturlyf ekki úr, en jæja,“ segir Gústi B.
Svarar Big þá til að gaman væri að fá þá Gústa B. og Bubba í alvöru rifrildi. Svarar Gústi B. því til að það verði þá einhver að hringja í Bubba þar sem þetta verði ekki útkljáð á netinu, þeir þurfi í hringinn.
„Það er mikil hiti þessa dagana ég verð að viðurkenna það, það er hiti,“ segir Gústi B.
„Sko þú getur boðið Pálma og Bjögga í hringinn, þú getur boxað við þá en þú getur ekki boðið Bubba í þá veislu,“ svarar Big sem segist munu standa Bubbamegin fari þeir Gústi B. í hringinn.
„Sko Björgvin henti í „Endalaus sjálfshátíð“, sko Bó er þekktur fyrir svona „Veistu hver ég er?“ stæla í mörg ár og ég hlusta ekki á svona kjaftæði. Má ég ekki kaupa mér úr? Segðu þeim að grjóthalda kjafti,“ segir Gústi B.
„Ég vona að það sé einhver á DV að hlusta takk,“ segir Big. „Ég vona það reyndar ekki,“ svarar Gústi B. og setur svo næsta lag af stað.
Hlusta má á umræðuna hér, sem hefst á mínútu 53:53.