Tónlistarparið Steinunn Jónsdóttir og Gnúsi Yones (Magnús Jónsson) giftu sig í dag hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu og voru synir þeirra, Jón Bragi og Marteinn viðstaddir.
„Hnappheldan,“ skrifar Steinunn í færslu á Facebook.
Hjónin hafa verið saman um árabil, og eru einnig samstarfsfélagar, þau eru bæði í hljómsveitinni Amabadama en Steinunn er einnig í rappsveitinni Reykjavíkurdætrum.