Parið Brynja Dan Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi Garðabæjar, varaþingmaður Framsóknarflokksins og eigandi Extraloppunar, og Jóhann Sveinbjörnsson, keyptu í vor íbúð í parhúsi í Garðabæ.
Parið fór í framkvæmdir og breytingar á íbúðinni og hefur Brynja leyft fylgjendum sínum á Instagram að fylgjast með, en hún er með um 20 þúsund fylgjendur á miðlinum.
Í gær birti Brynja nokkrar fyrir og eftir myndir af heimilinu og er óhætt að segja að vel hafi tekist til við framkvæmdirnar hjá parinu.