fbpx
Sunnudagur 23.febrúar 2025
Fókus

Barnabarn Helga í Góu keyrir um á tæplega 14 milljóna króna sportbíl

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Miðvikudaginn 17. maí 2023 08:56

Skjáskot/TikTok

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Söngvarinn Patrik Atlason, eða Prettyboitjokko eins og hann kallar sig, keyrir um á ljósbláum sportbíl af gerðinni Porsche.

Vísir greinir frá. Um er að ræða Taycan týpuna og er grunnverð 13,9 milljónir krónur.

Patrik er samt ekki alveg fullkomlega ánægður með sportbílinn en hann hefði viljað hafa hann bleikan. Ef hann er ekki nógu áberandi í umferðinni nú þegar þá verður enn auðveldara fyrir aðdáendur að bera kennsl á hann, en hann ætlar að fá sér bílnúmerið PBT, sem stendur fyrir Prettyboitjokko.

Tónlistarmaðurinn er barnabarn Helga Vilhjálmssonar, betur þekktur sem Helga í Góu, og hefur verið óhræddur við að flagga ættartengslunum.

@patrikatlason Ef þið spottið migí umferðinni fáið þið nammi #fyp #PBT ♬ original sound – Patrik Atlason

Sælgætisverksmiðjan Góa hefur verið að framleiða súkkulaðið Prettyboi „choco“ í nokkra mánuði. Patrik auglýsti einnig afa sinn í myndbandi þar sem hann og afi hans hittu Birgittu Líf Björnsdóttur og pabba hennar, Björn Leifsson, eða Bjössa í World Class eins og landsmenn þekkja hann, til að skrifa undir umboðssamning. Birgitta og Patrik flagga því bæði að þau draga taum ættmenna og njóta framgangs vegna þeirra.

@patrikatlason Það þurfti alvöru gæðavottun á þetta samstarf. Bookings í gegnum @Birgitta Líf Björnsd ♬ original sound – Patrik Atlason

Patrik gaf út lagið „Allar stelpurnar“ í byrjun maí.

@patrikatlason 00:00 05.05 #PBT #fyp ♬ original sound – Patrik Atlason

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Ronan Keating brjálaður: „Þú mátt drepa mann og ganga frjáls“

Ronan Keating brjálaður: „Þú mátt drepa mann og ganga frjáls“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hulda og Þorsteinn hjóla í Þorgrím Þráins – Kalla hann „risaeðlu“ og „forréttindafirrtan karl“

Hulda og Þorsteinn hjóla í Þorgrím Þráins – Kalla hann „risaeðlu“ og „forréttindafirrtan karl“