Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga nagli, fjallar í sínum nýjasta pistli á Facebook um niðurrif og neikvætt sjálfstal. Segir hún marga ekki átta sig á því að neikvætt sjálfstal er gríðarlegur streituvaldur og vekur upp líkamleg streituviðbrögð.
„Það er sorglegt hve margir eru með mastersgráðu í niðurrifi og neikvæðu sjálfstali.
„Ég er ekki nógu duglegur. Ekki nógu fyndinn. Ekki nógu klár. Ekki nógu sniðugur. Ekki nógu hugmyndarík.“
„Tala ekki nógu mikið við mömmu. Hringi ekki nógu oft í vinina. Er ekki nógu mikið með börnunum.“
„Einu sinni var ég í fantaformi en nú er ég bara feitabolla.“
„Missti kontrólið og kúlið í kúlupokanum. Aumingi með enga sjálfsstjórn.“
Horfa í spegil og klípa í húðflygsur á maga, rassi og lærum.
„Sjá þessi ógeðis slitför eftir meðgönguna. Tussubumban í öllu sínu veldi.“
„Ojjj, þú ert alltof feit í þennan kjól. Vömbin eins og illa vafin rúllupylsa og bingóvængirnir í fullum skrúða.“
Segir Ragga að ofangreindar setningar og fleira hræðilegt niðurrif og neikvætt sjálfstal sé dregið upp úr verkfærakistunni. „Þessi orðræða myndi sjúga sálina úr hverjum sem er. Margir átta sig ekki á að neikvætt sjálfstal er gríðarlegur streituvaldur og vekur upp líkamleg streituviðbrögð. Langvarandi kortisólmarinering veikir ónæmiskerfið.Örari hjartsláttur til lengri tíma getur leitt til hjarta- og æðasjúkdóma. Niðurlút líkamsstaða dregur mergsýgur sjálfstraustið. Heilinn gerir ekki greinarmun á hvort skilaboðin komi að innan eða utan.
Við höldum oft ranglega að með sjálfshatri og svipuhöggum getum við knúið okkur áfram til góðra verka. Í heilsuhegðun, frammistöðu í vinnu, ræktun á vinasambandinu, framkomu við aðra, og í foreldrahlutverkinu. En rannsóknir sýna að þessar tilfinningar eru svikulir djöflar. Niðurrif á sjálfinu er ömurlegur bólfélagi sem draugar þig hraðar en misheppnað Tinder deit.
Ímyndaðu þér ef þú myndir tala við þig með hlýju, samkennd og skilningi?
„Ég hef ekki getað verið með börnunum eins mikið og ég vildi, og mun bæta úr því.“
„Það hefur ekki verið tími né orka aflögu fyrir ræktina, og ég mun byrja aftur þegar hlutirnir breytast.“
„Ég er með aðeins meiri fituvef utan á líkamanum en ég myndi vilja, en það endurspeglar ekki virði mitt sem manneskju.“
Hvernig þú hugsar og talar við sjálfið hefur áhrif á þína líkamlegu og andlegu heilsu.
Veldu orðin þín af kostgæfni.“