Fitnessdrottningin Hafdís Björg Kristjánsdóttir og áhrifavaldurinn Kristján Einar Sigurbjörnsson hafa skráð sig í samband á Facebook.
Parið hefur verið töluvert í fréttum upp á síðkastið. Í lok mars var greint frá því að þau væru nýtt par, Hafdís steig þá fram og sagði þau aðeins vera að deita. Viku síðar fóru þau á fyrsta formlega stefnumótið og birtu nokkrar myndir, en ástin kulnaði eftir nokkra daga og leiðir þeirra skildu.
Sjá einnig: Hafdís Björg um áreitið, kjaftasögurnar og áhrifin á heilsuna
Amor virðist hins vegar ekki gefast auðveldlega upp en parið var að skrá sig í samband á Facebook og skráðu 24. mars sem upphafsdag ástar þeirra.
Fókus óskar parinu innilega til hamingju.
Sjá einnig: Hafdís ósátt við vinnubrögð Smartlands og segir Kleina ekki vera kærastann sinn
Sjá einnig: Marta María vísar ásökunum Hafdísar á bug