Leikkonan og fyrirsætan Brynja Guðmundsdóttir, sem gengur undir listanafninu Brynja Kula, og kærasti hennar Arnar Már Davíðsson, stofnandi framleiðslufyrirtækisins og auglýsingastofunnar Ketchup Creative, selja íbúðina sína í Reykjavík. Smartland greinir frá.
Um er að ræða 92,3 fermetra tveggja hæða íbúð við Njarðargötu í miðbæ Reykjavíkur. Ásett verð er 89,9 milljónir.
Íbúðin er björt og einstaklega sjarmerandi. Hún skiptist í forstofu, baðherbergi, eldhús sem er opið inn til borðstofu, stofu og sjónvarpsstofu. Lítið lokað rými er í forstofu fyrir þvottaaðstöðu. Efri hæð skiptist í opið rými, þrjú svefnherbergi og fataherbergi. Einnig er geymslurými undir súð. Fallegt útsýni er úr íbúðinni.
Hægt er að lesa nánar um eignina og skoða fleiri myndir á fasteignavef DV.