Pascal fer með aðalhlutverk í geysivinsælu HBO-þáttunum The Last of Us. Hann hefur einnig slegið í gegn í hlutverki sínu í vinsælu Disney-þáttunum The Mandolorian.
Fyrirsætan Ashley Graham spurði Pascal á kampavínsdreglinum á Óskarsverðlaunahátíðinni í nótt hvernig það væri að vera hjartaknúsari. Leikarinn svaraði hógvær: „Ég veit ekki hvernig það er.“
Pascal var gestur í YouTube-þættinum Hot Ones, þar sem stjörnurnar borða sterka vængi og spjalla um allt milli himins og jarðar.
Þátturinn með leikaranum hefur slegið í gegn, en hann hefur fengið yfir átta milljónir í áhorf. Horfðu á hann hér að neðan.