Falleg og vel skipulögð íbúð í fjöleignarhúsi í Ásakór í Kópavogi er komin í sölu á fasteignavef DV.
Um er að ræða 157,8 fm eign, á þriðju hæð, í húsi sem byggt var árið 2007.
Eignin skiptist í forstofu, þvottahús, baðherbergi, fjögur svefnherbergi, opið eldhús, stofu/borðstofu og sérgeymslu í sameign. Góð bílastæði fyrir framan húsið og þá fylgir sérmerkt stæði í lokaðri bílageymslu. Íbúðin er með tveimur stórum svölum sem möguleiki er á að yfirbyggja.
Þú getur lesið nánar um eignina og skoðað fleiri myndir á fasteignavef DV.