Brynjar Már Valdimarsson úvarpsmaður á Bylgjunni, eða BMV eins og hann er best þekktur, hefur sett endaraðhús sitt í Mosfellsbæ á sölu.
Eignin er 218 fm á einni hæð, þar af bílskúr 36,9 fm, byggt árið 2016.
Eignin skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, skrifstofu, eldhús, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi og geymslu.
Mikil lofthæð er í húsinu (allt að 6 metrar) og útsýnið er glæsilegt. Afgirtur 180 fermetra pallur er í suður, með stórum heitum potti frá Trefjum og hitastýringu. Vandaðar flísar og innréttingar eru í öllu húsinu, gólfhiti með thermostat, ásamt þjófavörn og myndavélum, snjóbræðslu í bílastæðum og fleira.
Þú getur lesið nánar um eignina og skoðað fleiri myndir á fasteignavef DV.