Fótboltaparið Fanndís Friðriksdóttir og Eyjólfur Héðinsson hafa sett íbúð sína við Foldarsmára 1 í Kópavogi á sölu.
Eignin er 160,3 fm efri sérhæð með sérinngangi með bílskúr í fallegu, vel viðhöldnu tvíbýlishúsi sem byggt var árið 1995.
Eignin skiptist í anddyri, stiga/ stigapall, sjónvarpshol, borðstofu, stofu, eldhús, þvottahús, baðherbergi, 3 svefnherbergi, svalir, bílskúr og geymslu.
Þú getur lesið nánar um eignina og skoðað fleiri myndir á fasteignavef DV.