Steinunn Eik Egilsdóttir listakona hefur sett íbúð sína í Fellsmúla 2 í Reykjavík á sölu.
Íbúðin er 93,7 fm, þriggja herbergja á þriðju hæð, í húsi sem byggt var 1963.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og sérgeymslu á jarðhæð.
„Notalega íbúðin mín í Fellsmúla 2 er komin í sölu. Björt íbúð með sólríkum suður svölum og þarna hefur verið mjög gott að búa.“
Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.