Einn fremsti innanhússarkitekt landsins, Rut Káradóttir, hefur sett glæsilegt einbýlishús sitt í Fremristekk á sölu.
Frá húsinu er einstakt útsýni yfir Elliðaárdal, borgina, Esjuna og allt út á Snæfellsnes. Húsið var byggt árið 1971 en hefur nú verið endurhannað og endurbætt . Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni og Rut hannaði svo sjálf allt innandyra. Logi Einarsson teiknaði viðbyggingu og Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hannaði lóðina.
Lýsingin innandyra og utan var svo unnin af Lumex og Smíðaþjónustan sá um smíði á innréttingum og Borg Sauðárkróki um innihurðir.
Húsið er skráð 242 fermetrar en þar af er 26,9 fermetra bílskúr.
Húsið er hið glæsilegasta að innan. Gengið er inn á millihæð og þar má finna anddyri með sérsmíðuðum fataskápum, gestasnyrtingu og lítið vinnuherbergi.
Síðan er gengið upp á efri hæð, upp steyptar tröppur með handriði sem er glætt með svokölluðu „gun-metal“ járni. Þar tekur við manni opið rými með eldhúsi, borðstofu og stofu. Þar má finna arinn sem er glæddur með gun-melta járni og svo er hægt að ganga út á svalir.
Á neðri hæð eru tvö rúmgóð svefnherbergi, lítið fataherbergi, baðherbergi með sturtu og svo 21,8 rými sem er kallað spa-rými en þar má finna vatnsgufu og heitan pott. Allt spa-rýmið er lagt með indónesísku basalti og þar má finna gas arinn sem er klæddur með grófhöggnu basalti. Sannkallað lúxusrými.
Fasteignamat eignarinnar er skráð 98,65 milljónir en óskað er eftir tilboðum í eignina.
Nánar má lesa um eiginina á fasteignavef DV.