Feðgarnir Ragnar Guðmundsson og Guðmundur Ragnarsson, eigendur Laugaás, afhentu á miðvikudag Neistanum 4.581.390 krónur sem söfnuðust þegar fjöldi fólks lagði leið sína á Lauga-ás vikuna 9.-15.janúar.
Fyrir áramót voru fréttir um að veitingastaðurinn Laugaás hygðist loka um áramótin fyrir fullt og allt eftir 43 ára starfsemi. Gestir og unnendur staðarins brugðust við og fylltu staðinn síðustu dagana. Þeir feðgar opnuðu staðinn aftur í janúar með það að markmiði að styrkja Neistann, Styrktarfélag hjartveikra barna. Boðið var upp á fiskrétti að hætti Laugaáss og verðið á hverjum rétt 3.500 krónur.
Í tilkynningu á vef Neistans segir að styrkir af þessum toga séu ómetanlegir fyrir starf Neistans en með þeim getum við haldið úti og aukið við ýmsa þjónustu til fjölskyldna hjartveikra barna, svo sem eflt styrktarsjóðinn, haldið viðburði og styrkt unglingastarfið.
„Við erum þakklátari en orð fá lýst þeim feðgum, starfsfólki Lauga-ás, birgjunum sem gáfu sínar vörur, félagsmönnum og hjartabörnum sem stóðu vaktina með okkur og öllum þeim sem komu og áttu fallega stund með okkur.“
Sjá einnig: Margir mæra Lauga-Ás sem lokar bráðum fyrir fullt og allt