Birgir Örn Guðjónsson, eða Biggi lögga eins og við þekkjum hann flest, og listakonan Sísí Ingólfsdóttir eru nýtt par.
Þau opinberuðu sambandið á Facebook í gær.
Tíu ára aldursmunur er á parinu, Birgir er fæddur 1976 og Sísí árið 1986.
Sísí lauk BA gráðu í listfræði frá Háskóla Íslands og MA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands. Á vef Listaval kemur fram að hún hefur verið upptekin að kynjahlutverkum og birtingarmyndum þeirra og sögu femínismans ásamt því að skoða móðurhlutverkið út frá ólíkum sjónarhornum og oftar en ekki á húmorískan hátt.
Biggi lögga er þekktur samfélagsrýnir og vekja pistlar hans gjarnan mikla athygli.
Hann á tvö börn úr fyrra sambandi og hún fjögur börn.